Námskeið í raftextíl fyrir prjónara tólf ára og eldri (12-16 komi í fylgd með fullorðnum). Textílmiðstöð Íslands býður upp á grunnnámskeið í raftextíl vegna væntanlegrar Jólahúfu-samkeppni. Þetta verður tveggja kvölda námskeið þar sem einblínt er á að samþætta rafeindatækni og prjón. Við hvetjum prjónara til að taka með sér fulltrúa yngri kynslóðarinnar til að leggja sér lið við að tileinka sér nýja tækni og miðla í leiðinni sinni þekkingu í prjóni.
Aðalatriði námskeiðsins:
Kynning á grunnatriðum raftextíl.
Læra hvernig á að innleiða LED ljós í prjón.
Taktu með þér eigin prjónaðar húfur (eða önnur prjónuð verk eins og peysur, trefla eða vettlinga)
Verð fyrir þátttöku á námskeiðinu er 2000 kr á einstakling., efnisgjöld innifalin
Kennarar eru Emma, Surzhana og Guðbjörg Þóra
Dagsetning
24. september - 17:30 - 20:30
25. september - 17:30 - 20:30
Staðsetning
Textílmiðstöð Íslands, Textíllab
Þverbraut 1,
540 Blönduós