Textílsmiðjan er útbúin stafrænum tækjum sem tengjast textílvinnslu, eins og vefnaði, prjóni, þæfingu og útsaumi. Þegar hefur verið fjárfest í stafrænum vefstól, prjónavél og útsaumsvél, nálaþæfingarvél, flosbyssum, leiserskera og vínyl prentara og skera.

- Fylgið öryggisreglum!
Mörg þessara tækja krefjast þess að það sé fylgst með þegar þau vinna og því mikilvægt að fylgst sé með tækjum í vinnslu en ekki fara frá þeim.
- Gangið vel um búnað!
Búnaðurinn okkar er dýr og því mikilvægt að gengið sé vel um hann. Ef maður er óviss er betra að spyrja heldur en að eyðileggja eitthvað.
- Takið til eftir ykkur og aðra!
Höldum TextílLab hreinu, það gerir vinnuna og stemninguna skemmtilegri.