- Um okkur
- Textílmiðstöð
- Ós Textíllistamiðstöð
- TextílLab
- Fabricademy
- Vefverslun
Verkefnið er lambhúshetta og þemað er “Huldufólk samtímans”
Reglur:
Hanna á og prjóna lambhúshettu á fullorðinn.
Þema keppninnar er huldufólk samtímans og ber að hafa það í huga við hönnunina.
Hönnunin skal vera ný, óheimilt er að nota áður útgefin prjónamynstur eða uppskriftir.
Lambhúshetturnar skulu handprjónaðar úr íslenskri ull.
Sagan á bak við hönnunina skal fylgja með, tölvuútprentuð.
Upplýsingar um skil:
Verkin skal merkja með dulnefni en nafn, heimilisfang og símanúmer skal látið fylgja í lokuðu umslagi merktu dulnefninu.
Senda skal fullunnið verk til:
Textílmiðstöð Íslands
bt: Svanhildar Pálsdóttur
Kvennaskólanum
540 Blönduósi
Móttakandi verkanna heitir fullum trúnaði við þátttakendur. Síðasti skiladagur er 1. maí 2022! Dómnefnd velur 3 efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2022, þar sem verðlaun verða afhent. Ístex, Tundra, Vatnsnesyarn og Rúnalist gefa glæsileg verðlaun. Verkin sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur. Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir (svana@textilmidstod.is)
Eftirtalin fyrirtæki styrkja keppnina: