- Um okkur
- Textílmiðstöð
- Ós Textíllistamiðstöð
- TextílLab
- Fabricademy
- Vefverslun
Textílmiðstöð Íslands vinnur nú að mótun Textílklasa í samstarfi við SSNV.
Textílmiðstöðin hefur það meginmarkmið vera alþjóðleg miðstöð öflugrar rannsóknar- og þróunarstarfssemi í textílframleiðslu, textíllistum og handverki í textíl. Fyrsta stafræna textílsmiðjan var opnuð á síðasta ári sem er nauðsynleg stoð fyrir aðila í textíliðnaði. Textílmiðstöðin er þátttakandi í ýmsum samstarfsverkefni á borð við Horizon2020 í verkefninu CENTRINNO og lausnamótið Ullarþon.
Textílklasi er formlegt samstarf sem fylgir ákveðnu utanumhaldi þar sem eftirfarandi forsendur þurfa að vera til staðar:
Nægilega stór hópur hagaðila sem er tilbúin að vinna saman að ákveðnum verkefnum.
Markmið samstarfssins þurfa að vera og skýr og sá árangur sem stefnt er að í sameiningu sem er þá stærri og meiri en hver og einn gerir í sínu horni.
Fjármögnun vettvangsins
Rekstrarform sem getur bæði verið hagnaðardrifið eða ekki; það þarf að að vera ákveðið tekjumódel sem drífur klasa framtakið áfram
Það þarf að vera ávinningur fyrir þá klasaaðila sem ákveða að mynda vettvanginn. Það virði getur komið í gegnum aukna þekkingu, meiri hæfni, sterkara tengslanet, aukna möguleika á fjárfestingu og aukna hæfni til að stunda nýsköpun hvort sem það er innan starfandi fyrirtækja eða með því að fjárfesta í nýjum verkefnum eða fyrirtækjum.
Boðað er til opins fundar um mótun samstarfs um Textílklasa þann 27. janúar kl. 13:00-16:00 og fer hann fram á netinu. Skráningarform er að finna hér: https://forms.gle/LHx1qEPuyQmr2oSL7
Verkefnið er styrkt af Lóu - nýsköpunarstyrk á landsbyggðinni.