- Um okkur
- Textílmiðstöð
- Ós Textíllistamiðstöð
- TextílLab
- Fabricademy
- Prjónagleði
- Vefverslun
Staðsetning námskeiða verður birt í vikunni fyrir hátíðina, einnig mun stofutöflur hanga uppi á Garntorginu og í Kvennaskólanum.
Garntorgið opnar kl: 16 föstudaginn 7. júní og á bás Prjónagleðinnar verður hægt að kaupa prjónaarmbönd og aðgang að þeim námskeiðum sem ekki verða uppseld.
Prjónaarmböndin verður hægt að sækja og kaupa á Garntorginu sem opnar klukkan 16 föstudaginn 7. júní og svo alla helgina á opnunartíma Garntorgsins.
//
The weekend bracelets will be available for pick-up and purchase at Garntorg in the Sportshall, which opens at 4 p.m., on Friday, June 7, and then all weekend during the opening hours of the Garntorg.
Sætaferð frá Akureyri á Prjónagleðina laugardaginn 8. júní 2024
Í samstarfi við SBA Norðurleið verður boðið upp á sætaferð frá Akureyri á Prjónagleðina laugardaginn 8. júní.
Lagt verður af stað frá Hofi á Akureyri klukkan 8.00 um morguninn og komið aftur til baka fyrir miðnætti sama dag.
Fargjaldið með prjónarútunni er 7.500 kr.
Ekki er neitt annað innifalið og getur fólk því valið hvað það vill gera á hátíðinni.
Hægt er að skrá sig á námskeið, kaupa prjónaarmband og fara á fyrirlestra eða bara njóta dagsins á Prjónagleðinni á eigin forsendum.
Ferðin endar með prjónagleði á prjónakvöldvöku í Krúttsalnum á Aðalgötunni á Blönduósi.
Kl: 9.30 | Brottför frá Hofi á Akureyri |
Kl: 11.15 | Áætluð koma á Blönduós |
Kl: 11.45 – 18 |
Njóta lífsins á Prjónagleðinni og Garntorginu |
Kl: 18 - 19.45 | Út að borða að eigin vali á Blönduósi |
Kl: 19.45 | Rúta frá Íþróttamiðstöð á Krúttið |
Kl: 20 - 22 | Prjónakvöldvaka á Krúttinu |
Kl: 22.10 | Brottför frá Krúttinu |
Kl: 23.55 | Áætluð koma í Hof á Akureyri |
KAUPA NÁMSKEIÐ OG PRJÓNAARMBAND
Sætaferð frá Reykjavík á Prjónagleðina laugardaginn 8. júní 2024
Í samstarfi við SBA Norðurleið verður boðið upp á sætaferð frá Reykjavík á Prjónagleðina laugardaginn 8. júní.
Lagt verður af stað frá Sambíóinu í Álfabakka klukkan 8.00 um morguninn og komið aftur til baka fyrir miðnætti sama dag.
Fargjaldið með prjónarútunni er 10.000 kr.
Ekki er neitt annað innifalið og getur fólk því valið hvað það vill gera á hátíðinni.
Hægt er að skrá sig á námskeið, kaupa prjónaarmband og fara á fyrirlestra eða bara njóta dagsins á Prjónagleðinni á eigin forsendum.
Dagskrá:
Kl: 8.00 Brottför frá Sambíóinu í Álfabakka
Kl: 12.00 Áætluð koma á Blönduós
Kl: 12 – 18 Njóta lífsins á Prjónagleðinni og Garntorginu.
Kl: 18.15 Brottför frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi
Kl: 23.00 Áætluð koma í Mjóddina í Reykjavík.
Kaupa námskeið og prjónaarmband