Próf í Kvennaskólanum

Ágætu háskólanemendur sem huga að próftöku hjá okkur:
Prófatíð er framundan (eða í gangi nú þegar) og ánægjulegt að geta tryggt að nemendur geta tekið próf í heimabyggð.

Við viljum minna á að allt skipulag og skráning í próf liggur hjá viðkomandi skóla. Sú breyting varð á hjá okkur í vor að nú er tekið gjald fyrir hvert próf að upphæð 4000 kr. Þetta er gert að höfðu samráði við samstarfsaðila okkar Farskólann miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra.

Vinsamlega millifærið amk deginum áður en prófið er og sendið tölvupóst á textilmidstod@textilmidstod.is þar sem nafn greiðanda kemur fram.
Reikningsnúmerið er 0307 13 127093 - kt. 460712 0410.
 
Við viljum benda þeim próftökum sem eru að taka próf í Kvennaskólanum á að margþætt starfsemi er í húsinu og ekki alltaf hægt að tryggja að það sé enginn hljóð enda húsið gamalt og hljóðbært. Því viljum við biðja nemendur sem eru viðkvæmir fyrir hávaða að taka með sér heyrnarhlífar til öryggis.
 
Vinsamlega látið okkur vita ef þið getið ekki mætt t.d. vegna veikinda.